hugleiðingar Baunarspírunnar um allt og ekkert

reyndu ekki að rökræða við mig....

28.01.2009 19:47:33 / dittadani

The strategy that works for me getting started writing

Each writer has to find a strategy that helps him/her to get started. The strategy that I found out that works for me is to start the writing process by brainstorming about the subject at hand. Then, I organise my points that I have come up with in the brainstorming. The next step is to free-write on each point, or just write as much as possible that comes to my mind about the subject. However, if I am completely at a loss about the subject, I start by reading and researching the subject, to try and find an angle that suits me so that I can write on the matter.   

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.11.2008 13:47:12 / dittadani

Myndir

Kíkið á myndasafnið, nokkrar frá Tona...
Það koma svo fleir seinna

Kh.Edith

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.10.2008 12:20:14 / dittadani

Fljótt skiptast veður í lofti

Sælir allir þeir sem ramba hér inn, eins og þið sjáið á blogginu mínu, skrifaði ég síðast að ég væri meðal manna á ný. En fljótt skiptast veður í lofti og ég er ekki lengur meðal manna. Nú er ég á floti í HÍ að rembast við að ljúka tvöföldu prófi í ensku og dönsku...hehe.."geðveikur, alveg snar geðveikur". En svona áður en ég dembi mér í einn versta próflestur ævi minnar, ensk ljóð, þá ætla ég að setja inn smá snilld fyrir ykkur. Jú, ég er svo lukkulega gift kona að ég verð nottlega að setja mér markmið sem slík, til þess hef ég fengið hjálp úr því góða blaði "The good wife guide", og hér er grein úr því blaði sem ég vil að allar konur taki alvarlega og geri að sínum boðorðum:

Housekeeping Monthly, May 13, 1955.

 

The Good Wife's Guide

- Have dinner ready.  Plan ahead, even the night before, to have a delicious meal ready, on time for his return.  This is a way of letting him know that you have been thinking about him and are concerned about his needs.  Most men are hungry when they come home and the prospect of a good meal (especially his favourite dish) is part of the warm welcome needed.

 

- Prepare yourself.  Take 15 minutes to rest so you'll be refreshed when he arrives.  Touch up your make-up, put a ribbon in your hair and be fresh-looking.  He has just been with a lot of work-weary people.

 

- Be a little gay and a little more interesting for him.  His boring day may need a lift and one of your duties is to provide it.

 

- Clear away the clutter.  Make one last trip through the main part of the house before your husband arrives.

 

- Gather up schoolbooks, toys, paper etc. and then run a dust-cloth over the tables.

 

- Over the cooler months of the year you should prepare a light fire for him to unwind by.  Your husband will feel he has reached a haven of rest and order, and it will give you a lift too.  After all, catering for his comfort will provide you with immense personal satisfaction.

 

- Prepare the children.  Take a few minutes to wash the children's hands and faces.  (If they are small), comb their hair and, if necessary, change their clothes.  They are little treasures and he would like to see them playing the part.  Minimise all noise.  At the time of his arrival, eliminate all noise of the washer, dryer or vacuum.  Try to encourage the children to be quiet. 

 

- Be happy to see him.

 

- Greet him with a warm smile and show sincerity in your desire to please him.

 

- Listen to him.  You may have a dozen important things to tell him, but the moment of his arrival is not the time.  Let him talk first - remember, his topics of conversation are more important than yours. 

 

- Make the evening his.  Never complain if he comes home late or goes out to dinner, or other places of entertainment without you.  Instead, try to understand his world of strain and pressure and his very real need to be at home and relax.

 

- Your goal: Try to make sure your home is a place of peace, order and tranquillity where your husband can renew himself in body and spirit.

 

- Don't greet him with complaints and problems.

 

- Don't complain if he's late home for dinner or even if he stays out all night.  Count this minor compared to what he might have gone through that day.

 

- Make him comfortable.  Have him lean back in a comfortable chair or have him lie down in the bedroom.  Have a cool or warm drink ready for him. 

 

- Arrange his pillow and offer to take off his shoes.  Speak in a low, soothing and pleasant voice.

 

- Don't ask him questions about his actions or question his judgment or integrity.  Remember, he is the master of the house and as such will always exercise his will with fairness and truthfulness.  You have no right to question him.

 

- A good wife always knows her place.

Með óskum um góða helgi framundan, ég verð á kafi í Keats, Wordsworth og einhverjum fleiri snillingum bókmenntasögunnar, hver útnefndi þá endilega snillinga, langar mig að finna og hafa mjög alvarlegar samræður við....


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 16:18:45 / dittadani

Á meðal manna á ný

Jæja krúsídúllurnar mínar..
Nú er ég loksins komin meðal manna á ný eftir þá lengstu próftörn í mínu minni, en nú er gott að teygja úr sér, sjá grasið grænka og hrista slen vetursins af sér.
Prófin hafa hingað til gengið bærilega, allavegna búin að ná því sem komið er, sem er góðs viti, en næst á dagskrá er bara að skella sér í það að fara að vinna fyrir kostnaði sumarsins.
Ég var svo heppin að vera ráðin á fyrsta staðnum sem ég sótti um á, og verð þess vegna að vinna við að baka brauð og kökur og kokkast eitthvað þetta sumarið. Ég og býflugurnar verðum sem sagt að spóka okkur í Grasagarðinum í sumar. Líst vel á þetta nýja jobb mitt og hlakka til að mæta í vinnuna í þessu stórkostlega vinnuumhverfi.
http://www.islandsmyndir.is/myndir/sudvesturland/forsida_sudvesturland_5015.jpg
Annars er svo bara brúðkaupið í júlí og svo enskan/danskan næsta haust...Hlakka til að takast á við ný verkefni og bíð spennt eftir sumri aldarinnar (allavegana mínu).
Gaman að vera komin meðal ykkar aftur, og nú segjum við saman áfram Ísland á fimmtudaginn...
Njótum sólar og vináttu og ásta...
Afmæliskveðjur til tilvonandi eiginmanns míns með daginn í dag
Einnig fá Guðný og Beta knús með afmælin hjá þeim á morgun
(látum aldurs ekkert getið)
Bæ í bili


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 12:35:01 / dittadani

Meira Steen og Stoffer...




Já svona getur skólalífið farið með mann...


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 12:33:42 / dittadani

Hahaha..varð að deila þessu með ykkur..



en ég er víst líka...


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.04.2008 15:07:48 / dittadani

Vér mótmælum allir...

Í gær fékk ég afar áhugaverðan tölvupóst, þar var ég beðin um að versla ekki í dag, ég ásamt öllum öðrum íslendingum átti að sleppa því að fara í búðir í dag. Já íslendingar höfðu sett verslunarbann á sjálfan sig í einn dag til að mótmæla stöðugum hækkunum á matarverði.
Þessu tek ég þátt í heils hugar, og fer því ekki í eina einustu verslun í dag....
Já, með orðum afar þekkts íslendings, þá segi ég:
Vér mótmælum allir


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.03.2008 13:07:55 / dittadani

Já góðan daginn

Þetta sagði stjörnuspáin mín í dag:

FiskarFiskar: Þú tekur ákvarðanir, líka þær sem heyra ekki undir þig. Því miðir eru ekki allir jafn færir og þú. Og þú vinnir gott verk fyrir þá sem geta ekki hugsað sjálfstætt.

Hehe, sko hvað ég er dugleg...

En annars er bara allt fínt að frétta, eins og flestir vita af núna erum við Halli að fara að ganga í það heilaga og nei þá meina ég ekki dýrlingatölu, þó við ættum sennilega alveg heima þar. Okkur til mikillar gleði þá er strax komin  stórkostleg mæting, þannig að þetta lítur út fyrir að verða dúndurfjör þarna í júlí.
http://www.partywedding.com/img/mid/DoYouTakeHim-CakeTop-6082.jpg
Eins og þið sjáið á síðunni minni er hafin niðurtalning..hehe..við bíðum spennt.
Já, við erum ekki búin að gera gjafalistann ennþá, en það kemur að því, lofa....
Annars viljum við bara segja takk fyrir allar heillaóskirnar frá ykkur, ekkert smá frábærar viðtökur við þessum fréttum

Góða helgi og bæ í bili


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.03.2008 10:17:44 / dittadani

Hún Gróa mín á Leiti....

Einhvern tíma var sagt við mig af manni sem ég mat afar mikils, að maður væri kenndur við þá staði sem maður kæmi á. Það sem hann meinti var að þeim mun færri staði maður kæmi á væri minna um mann talað.
Ég minntist þessara orða hans föðurs míns fyrir stuttu, þegar ég las grein í blaði um hvernig íslenska þjóðarsálin væri orðin. Þar stóð að hún Gróa okkar á Leiti, virtist búa allstaðar því það væri sjaldgjæft hjá íslensku þjóðarsálinni að tala fallega um náungan þér við hlið. Ef þetta er satt finnst mér það afleitt, því nú þekki ég annsi marga sem leggja sér aldrei illt orð í munn um aðra. En greinin hélt þessu fram að öfundin og keppni í samfélagi voru, væri orðin þetta slæm.
Mér var hugsað þá til annarra orða sem ég las eftir A.J.Austin, þekktan breskan málfræðing. Hann hafði skrifað grein um það, m.a. að oft væri tungumálið notað frekar til að ná einhverju fram: t.d. gætir þú rétt mér saltið. Hér er tungumálið notað óbeint og kurteisislega, en það er viss áætlun með notkun málsins, við viljum fá saltið. Þessa tilgátu hefur hún Gróa mín á Leiti sennilega aldrei heyrt, þar sem hún ætlaði sér aldrei að ná einhverju fram með sínum orðum, ja nema kannski að narta aðeins í næsta náungan. En til að verja hana Gróu, þá komu þessar kenningar jú eftir hennar tíð.
En þá varð mér hugsað til annars, þjóð eins og hin íslenska þjóð, sem í gegnum tíðina hefur þolað allt það sem hin íslenska þjóð hefur þolað, allt erfiðið sem forfeður og mæður gengu í gegnum, til þess eins að koma okkur hér fyrir sem best. Á þeim tíma voru munnmælasögur um hetjuskap og dáðir forfeðra okkar, haldið á lofti, svona til að stytta sér stundir.
Þá fór ég að hugsa, hvað er langt síðan maður hefur heyrt um hetjuskap og dáðir náunga síns. Er virkilega þetta mun léttara að hnýta en hrósa....Já, maður spyr sig.
Ég sat í strætó ekki svo all fyrir löngu, og leit á komandi kynslóðirnar sem sátu í kringum mig. Og ég fylltist stolti, af hverju er alltaf að verið að hnýta í þessa unglinga, ég sá ekkert annað en lífsglatt ungt fólk, sem ræddu sín á milli hversu tilgangslaus dönskukennsla væri, ekki að það sé gott fyrir mig upprennandi dönskukennaran, en þau virtust vita annsi margt um sögu þjóðarinnar og tengsl okkar við dani. Og það sem kom mér ennþá meira á óvart að sumt þessa unga fólks, vildi sko ekki láta taka af sér þann möguleika að komast í erlendan háskóla, þau vildu hafa sitt veganesti með sér út.
En þá varð mér hugsað til hvort þessi óvilji í garð náungans, ef svo má orða, væri velferðarsjúkdómur. Það er víst nóg af þeim til, hvers vegna ekki "slúður". Höfum við virkilega ekkert betra að gera en að hnýta út í náugan. Nei, ég neita að trúa því að mín þjóð, sem staðið hefur af sér allt, sé búin að láta draga sig niður og allir séu komnir í kaffi hjá henni Gróu minni á Leiti...

Bæ í bili
 


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 10:46:27 / dittadani

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag...

Til lukku með daginn litla sys...
http://bryndissvavars.blog.is/img/tncache/500x500/75/bryndissvavars/img/c_documents_and_settings_owner_my_documents_my_pictures_takn_og_merki_afm_kaka.png
Annars voðalítið að frétta, jú páskarnir verða skemmtilegir eða hitt þó...þrjú tonn af verkefnum sem þarf að skila fyrir, í og eftir páskafrí..Jey, elska að vera í skóla...Svo er að fara að finna sér BA-ritgerðarefni, ekki seinna vænna, en vandamálið er að það er enginn prófessor sem getur tekið mig að sér. Það verður ráðin inn einhver í byrjun sumarsins, sem ég þarf svo strax að tala við...hehe, aumingja hann
Annars bæ í bili, þangað til næst


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2008 11:59:29 / dittadani

..singing in the rain..just singing in the rain

Jæja gott fólk, ég er kominn með upp í kok á veðurfarinu hér á þessu klakaskeri og hugsa nú í átt til sólarlanda í þeirri von um að geta náð úr mér þessum hrolli sem ég hef haft undanfarna mánuði...uss..

Í dag er 6. mars og engin sem ég þekki (held ég) á afmæli, en það verða nokkrar afmælisfærslur hér á næstunni...jú og fyrir utan það að  ég mér sjálfri tókst að ná 31. árs aldrinum um daginn..hipp,hipp og húrra fyrir mér..
Já en eins og ég sagði áðan er ég komin með upp í kok af þessu veðri, þannig að ég ákvað að skella síðunni minni í páskafötin, svona smá fyrr, en ekkert alvarlega...
Svo sé ég að það eru komir undirflokkar hér á síðuna mína og ég get valið um alþjóðamál, efnahag,heilbrigði o.s.frv...ég segi nú bara einfaldlega úff, get ekkert valið af þessum umræðuefnum, þar sem alþjóðamálin eru í fokki, efnahagurinn minn hefur séð betri daga og heilbrigðið mitt er ekkert til að hrópa húrra yfir..
Þannig að ég kveð ykkur í bili og eins og eftir velvildarsamkomulaginu, þá veit ég að þið eigið eftir að líta á þetta blogg mitt sem hinn eina sannleika...


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 11:49:18 / dittadani

Ja..nei sko

Ja, nei sko...undanfarið hef ég eytt ómældum tíma fyrir framan imbann að fylgjsast með drengjunum okkar í Noregi, verð að viðurkenna að ég var komin með hálfgert óbragð í munninn á tímabili og farin að huga að því að nota minn tíma í eitthvað annað, en lo and behold, nú getur verið að við séum á leið á ólympíuleikanna, verð að fara að gera upp við mig hvort ég ætli að eyða mínum tíma í að fylgjast með því...

Aðrar stórfréttir af Íslandi eru þær með lególeikinn í borgarstjórninni, þar skiptast menn á sætum eins og kubbum í legó, og leyfa sér svo að taka nafn lýðræðis í munn sér, þetta veldur mér persónulega alveg svaðalegu óbragði, en þökk sé þeim sem fóru og mótmæltu. Hefði betur skellt mér með og tekið með mér ópal til að deila út, því það voru greinilega fleiri en ég með óbragð í munninum...

Annars er vei þeim konum sem hafa farið í sílikon, já nei elskurnar, nú mega þær ekki lengur láta brenna sig með bobbingana, gætuð skemmt líkbrennsluofnin.....stendur ekki einhverstaðar að maður fari úr heiminum eins og maður kom inn í hann...konur framtíðarinnar verða að sætta sig við að yfirgefa þennan heim FLATBRJÓSTA

En svona er Ísland í dag...er mikið að spá í að pakka niður aftur...


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Dittadani...Já, sæll félagi
Dönsku- og enskunemi með meiru, frúin hans Halla, jazzgeggjari, kaffiþambari, jógagúrú, og allt milli himins og jarðar....